Línu-bil
Klukkan
26.08.2007 22:44:23 / evaa

Núna smá um mig!!!

púfff...hvar skal byrja???

þunglyndi,fjárhagsáhyggjur,minnistap,jafnvægisskyn,daufleiki,svefntruflanir.....

Allt þetta saman er ekki góður pakki en ég er byrjuð loksins að fá aðstoð með þetta er byrjuð í viðtölum hjá Hvíta bandinu og er í endurhæfingarmati hjá Janusi, og það gengur ágætlega.

En síðustu dagana hef ég tekið eftir því að minnið mitt er eitthvað að klikka... á það til að spyrja fólk um sömu hlutina aftur og nýbúin.  Ég datt í stigaum hjá mér í gær, hitti ekki í tröppuna!! myndi svo sem ekki gera mikið úr því nema það að ég datt næstum aftur í dag... og hef ég oft lent í því að hitta ekki tröppurnar!!!:$

Mér finnst skemmtilegast þessa dagana að horfa á fiskana mína synda í hringi  og geri mikið af því að sitja á gólfinu fyrir framan þá  8|  og strjúka kisunum.

Núna geng ég alltaf eð dagbók á mér sem er svona minnið mitt, bara svo ég geti sagt að ég hafi gert eitthvað og er meira segja með það skjalfest!! eða já eða eitthvað svoleiðis...

En ég veð úr einu yfir í annað... þannig er ég ... ekki bara núna heldur ALLTAF...


» 0 hafa sagt sína skoðun

17.08.2007 16:44:51 / evaa

hugsi hugs...

eftir smá tíma til að hugsa málin ákváðum við að ráðfæra okkur við lögfræðing, bara svona til að hafa allt á hreinu.

og komumst við að þeirri niðurstöðu að á þessum tíma málsins er ekki tímabært að ræða forræði né lögheimilisbreytingu og því er staðan þannig að eftir skólaárið ef þetta gengur vel, þá kemur hún heim, og ef þetta gegnur illa þá kemur hún heim!!

 Ég er ekki tilbúin að taka neinar stórtækar ákvarðanir að svo stöddu og einnig get ég ekki tekið ákvörðun núna með hvað verður eftir ár!!!

það verður bara að koma í ljós.....


» 2 hafa sagt sína skoðun

15.08.2007 14:45:16 / evaa

ég skal leyfa þér að fylgjast með.

ok...ætli það sé ekki best að byrja á byrjuninni.

Hafdís er búin að vera undir smá smásjá vegna reiðikasta sem hún hefur sýnt okkur,mér og Ívari og einnig kennurum og samnemendum í Hamraskóla.

Henni hefur ekki liðið vel í skólanum nánast frá því að skólaganga hefst og erum við (ég og Ívar) búin að prófa ýmis ráð til að "tækla" vandann.

En á vorrmánuðum var loksins sest við langt borð þar sem 2 sálfræðingar sem hafa verið með Hafdísi í viðtölum og Félagsráðgjafi sem hefur verið mér innan handar, og svo allir foreldrar hennar... s.s. ég , Ívar, Kjartan og Krystal.

þar var farið yfir niðurstöður úr könnunum/prófum sem við öll þeittum og svo það sem Hafdís gerði og var niðurstaðan sláandi.  Kom þar í ljós að Hafdísi líður hreinlega ekki vel. hún er mjög óörugg með sjálfa sig,virðist hafa lítið sjáfstraust og er gjörn á að þóknast öðrum. (nema þessum nánustu) hún hefur ekki sýnt Kog K þessa hegðun bar þeim sem hún í rauninni umgengst dags daglega.

Ýmsar hugmyndir komu fram og þar á meðal það að hún myndi skipta algjörlega um umhverfi eins og það að skipta um skóla. Og jafnvel flytja til föður síns. og var þar talað um eitt skóla ár!

Ég og Ívar hugsum þetta í sumarfríinu og komumst að því að þetta sé kannski bara Hafdísi fyrir bestu, fá tæifæri til að byrja upp á nýtt ef svo má að orði komast.

En þegar ákvörðunin var í raun og veru tekin var ég undir miklu álagi og stressi og með ´mikinn kvíða, ´missti meðvitund einn daginn og var flutt með sjúkrabil uppá spítala og alles,(en það er önnur saga) og á þessum tíma ákveð ég að hún fari til pabba síns og var það sett í framkvæmd , ég sæki um fyrir hana í Álftanesskóla og fylli út umsókn hjá menntasviði Reykjavíkur um að þeir greiði skólann.

Á meðan ég geri þetta þá er K og K stödd í USA og voru samskiptin okkar mest í gegnum sms og eitt eða tvö símtöl.

Jæja svo koma þau heim og ég fer með Hafdísi til þeirra eftir Gay Pride og við ákveðum að hittast daginn eftir án barna og ræða smáatriðin.

Eftir stutt kurteisislegt spjall segir Kjartan að hann vilji hluta forræðis, breyta lögheimili og á milli línana má heyra það að hann ætli að hafa hana til frambúðar!!!!

Þar byrja ég í smá kvíðakasti, en held ró minni gagnvart þeim og endar samtalið þannig að við ætlum að hugsa málið aðeins.....

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

13.08.2007 16:09:15 / evaa

jæja síðan læst!!

og enginn getur lesið...hahahahaha...hver er þá tilgangurinn með þessu??? en jú málið er það að mig langar stundum að koma hugrenningum mínum eitthvert og þetta hefur verið staðurinn í svolítinn tíma og því langar mig að halda því áfram...

 En ég er baraorðin svo rosalega hreinskilin og opinská að ég er hrædd um að ákveðinn aðili lesi þessar færslur mínur.

ég vona að þú haldir samt áfram að lesa hérna og vonandi getur þú hjálpað mér með að rífa mig upp úr þessu sem ég er föst í!!!

bestu kveðjur EvA


» 2 hafa sagt sína skoðun

12.08.2007 19:45:30 / evaa

Það kemur fyrir að ég skrifi eitthvað hér ...

 

Mér finnst ég oft vera svo ein, sem er bara skrýtið því það er alveg fullt af fólki í kringum mig!!

En þessi tilfinning er búin að vera að krassera í maganum eða einhverstaðar þarna inni í soldinn tíma...

Af hverju fer þessi tilfinning ekki?


» 0 hafa sagt sína skoðun


Könnun
Á að ferðast utan landsteina í sumar?





Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 45420