Það er ekki mikill peningur á milli handanna á þessu heimili og því eru skápar afar tómir.
En ég sé til þess að piltur fái alltaf eitthvað að borða á matmálstímum.
Í dag "vældi" ég á Hvíta Bandinu um það að það væri enginn matur til og enginn peningur. Þá var ein sem sagði mér frá Mæðrastyrksnefndinni, og að þau væru að úthluta mat í dag....
Ég var nú ekkert á því að fara, fannst ég ekki vera í svo mikilli neyð, en lét tilleiðast og líka af því að við ætluðum 3 saman og allar þurfum við á smá styrk að halda.
Þegar ég kom þá fékk ég númer og fór í röð og fékk einn poka með matvörum. Mjög þakklát enda eru kartöflurnar komnar í pott og fiskurinn fer eftir smá. og svo verður flatkökur með. Alvöru veisla

En það sló mig soldið að sjá hversu mikið af útlendingum sækja þangað og þá aðallega KARLMENN!! Er þetta ekki fyrir mæður?
Æi ætla ekki að pirra mig yfir þessu núna.... er farin að smyrja kökurnar