Línu-bil
Klukkan
20.06.2009 09:59:36 / evaa

Horfa á þetta litla!

Ég ætla að reyna að tileinka mér þá hugsun að sjá jákvætt við hvað sem er ...aftur.

Ég man hvað allt var betra þegar ég hugsaði þannig. Af einhverjum ástæðum breyttist það og ég fór að horfa á þetta neikvæða og stóra.
En nú skal sko breyta því.

Ég á yndislega vini, heilbrigð börn, frábæra fjölskyldu og hund sem finnst ég æði :D

Tímamót voru í lífi mínu 17 júní .... ég er orðin þrítug, komin á fertugsaldurinn... og vá ég ætla sko að njóta lífisins og njóta þess að vera til.

Knús á línuna. :)

» 1 hafa sagt sína skoðun

04.06.2009 11:28:51 / evaa

Brosi gegnum tárin...

Af hverju er meira lagt á suma en aðra?


Mér finnst lífið svo ósanngjarnt og ömulegt þessa dagana.
Er búin að vera að bíða eftir svari frá tryggingastofnum í 5 mánuði og alltaf fæ ég sama svarið..nokkrar vikur í viðbót!!

Ég er búin að grennast svo ískyggilega mikið að ég er hrædd um að ég hverfi einn daginn, 5 cm farnir á flestum líkamspörtum, fötin eru hætt að passa á mig og skinnið líka...

Núna er sumarið komið og þá verð ég meira með börnin og ég veit hreinlega ekki hvernig ég á að fara að því. Stelpan vill að sjálfsögðu fara á hin og þessi námskeið . Sem betur fer er strákurinn ekki farin að biðja um það, ennþá mjög nægjusamur.
En fötin þeirra eru að verða of lítil og úr sér gengin, kemst ég upp með það að hafa þau bara á stuttbuxum í sumar?

Ég á afmæli bráðum og satt best að segja er ég alveg beggja blands með það. veit ekki hvort ég eigi að gleðjast eða að gráta....

Hvað er gaman að vera tekjulaus? veik? og finnast allt vera á móti sér?

hvar endar þetta?????

» 1 hafa sagt sína skoðun

28.04.2009 15:43:08 / evaa

Taktu daginn frá!!

Það styttist óðum í að daman verði tuttugu og tíu ára gömul og þá er sko tími komin á að fagna þeim áfanga.

Ætla að halda uppá daginn 20 júni.

Hvernig, hvar, kemur í ljós þegar nær dregur. en taktu daginn frá :)

» 0 hafa sagt sína skoðun

15.04.2009 17:45:14 / evaa

Stolt!?!?!??

Það er ekki mikill peningur á milli handanna á þessu heimili og því eru skápar afar tómir.

En ég sé til þess að piltur fái alltaf eitthvað að borða á matmálstímum. 

Í dag "vældi" ég á Hvíta Bandinu um það að það væri enginn matur til og enginn peningur.  Þá var ein sem sagði mér frá Mæðrastyrksnefndinni, og að þau væru að úthluta mat í dag....

Ég var nú ekkert á því að fara, fannst ég ekki vera í svo mikilli neyð, en lét tilleiðast og líka af því að við ætluðum 3 saman og allar þurfum við á smá styrk að halda.

Þegar ég kom þá fékk ég númer og fór í röð og fékk einn poka með matvörum. Mjög þakklát enda eru kartöflurnar komnar í pott og fiskurinn fer eftir smá. og svo verður flatkökur með. Alvöru veisla :)

En það sló mig soldið að sjá hversu mikið af útlendingum sækja þangað og þá aðallega KARLMENN!!  Er þetta ekki fyrir mæður?

Æi ætla ekki að pirra mig yfir þessu núna.... er farin að smyrja kökurnar :)


» 6 hafa sagt sína skoðun

06.04.2009 20:14:43 / evaa

Líður vel.

já þessa dagana líður mér bara súper vel. Er í góðu jafnvægi.
En tek enn einn dag í einu.


Gleðilega páska dúllurassgöt

» 2 hafa sagt sína skoðun

02.02.2009 09:46:19 / evaa

pirr pirr...

já ég er bara pínu pirruð í augnablikinu.

er ég komin á breytingaskeiðið?
er þetta fyrir/eftir/milli tíða spenna?
eða er þetta kannski bara ekkert tengt líkamanum??

en annars er ég sko bara hress, er búin að vera að leika mér í snjónum á jeppanum mínum8) en þarf að setja alla leiki á pásu vegna SMÁ bakverks... :(

en bíðið bara ...
Minn tími mun koma...


» 1 hafa sagt sína skoðun

13.01.2009 19:59:16 / evaa

Nýtt ár og allt....



Ég er ekki að nenna að gera einhvern pistil um síðasta ár..held að það sé að mestu bara tímasóun... að mestu..


Fór í tvær utanlandsferðir og það er svona það jákvæða sem stendur uppúr :p

Þetta nýja ár..2009 verður öðruvísi..skrýtið, en jafnframt skemmtilegt!!

Það má alltaf gera gott betra og vont skárra....  eða hvernig var þetta aftur? allavega... takk fyrir gamla árið sem var sprengt upp á kreppuáramótunum. Sjáumst ógissssslega hress á þessu fína ári.


» 0 hafa sagt sína skoðun

25.12.2008 00:54:50 / evaa

ég óska....



Kæru lesendur nær og fjær...
ég óska ykkur öllum Gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.


; font-family: Verdana;">ákvað svo að skella einni mynd af mér í tilefni jólanna sem tekin var af mér í dag...
; font-family: Times New Roman;" />



og svona verð ég að ári...


:$





kær jólakveðja...
Eva





» 2 hafa sagt sína skoðun

03.12.2008 15:29:28 / evaa

Styttist í jólin...



Núna þarf ég að fara að klára að skreyta, koma öllu jóladótinu upp svo ég geti farið með kassana aftur niður í geymslu.....

En fyrst þarf að þrífa eittvað....skúra og svona..ég er bara ekki að nenna því!!
nennir einhver að þrífa fyrir mig?


» 4 hafa sagt sína skoðun

20.11.2008 22:34:24 / evaa

Fór á fund Þórhalls miðils í dag...

Ég var varla sest í stólinn þegar hann byrjaði að lýsa litnum á árunni minni. Blá með fjólubláum lit.

Sagði að ég væri falleg jafnt utan sem innan.8)

Ég á að einblína meira á mig sjálfa og hætta að dreifa orkunni minni útum allt. Vera frek á hana:$
orkuna mína sko...

fundurinn endaði með því að hann faðmaði mig og sagði nokkuð sem ég hef sagt mikið síðan í haust

Takk fyrir að vera til


» 2 hafa sagt sína skoðun

18.11.2008 14:18:18 / evaa

Reiði

Að upplifa mikla reiði er ekki of góð tilfinning, sérstaklega þegar maður getur ekki beint henni á neinn sérstakann!!

Lífið er svo hverfult að ég bara næ ekki nokkurri átt.

Mig hreinlega skortir orð til að lýsa því sem er í gangi núna.

En minn hugur er núna hjá mínu vinafólki sem var að missa son sinn sem var 8 mánaða. Mjög svo óréttlátt!!


† Blessuð sé minning hans
og megi æðri máttur vaka yfir fjölskyldu hans.†



» 0 hafa sagt sína skoðun

10.11.2008 18:58:28 / evaa

Missir

á þessu ári hef ég verið að upplifa allskonar missi.

Kisan mín til 7 ára þurfti að fá svefninn langa í ágúst eftir erfið veikindi.
Vinkona mín er tekin frá mér.
Önnur vinkona mín er að fjarlægjast mig óhugnanlega hratt.

Vinur kemur og vinur fer....
alltaf áttu stað í hjarta mér.
vinafaðmur bíður þín.
þegar þú snýrð aftur til mín.



Gefum okkur 2 mínútur til að gleðjast yfir öllu góðu stundunum sem hafa verið á þessu ári.


» 2 hafa sagt sína skoðun

30.10.2008 14:11:44 / evaa

OÓ....

Þann 9 september þá mældi ég flesta líkamshluti ..bara svona til að geta fylgst með... og ekki bara á vigtinni.

Ég er núna 62,3 kíló.... grömmin leka af mér  :s

Yfir naflann var ég 76 og 1/2 cm...   núna er 75 cm.....

núna þori ég hreinlega ekki að gera neitt... hvernig á ég að geta þyngt mig ef sentímetrarnir leka af mér og grömminn???


» 1 hafa sagt sína skoðun

23.10.2008 15:24:56 / evaa

Ég ætla að verða mikið meira en vöðvastæltur!!

Söng einhver í góðu lagi.....

Ég er búin að ákveða það og er byrjuð að slást við vigtna mína....(á samt enga...en það er önnur saga)
Lengi vel hef ég verið undir kjörþyngd og hef mörgum sinnum reynt að fara í 64 kílóin. Það tók mig 3 ár fyrir 4 árum síðan að komast úr 55 í 64kg. og er ég búin að halda mig ca í þeirri þyngd... en núna er vigtin eitthvað að stríða mér og núna færast tölurnar neðar!!

Ég er 178 cm á hæð, smábeinótt og get engan veginn verið undir 60 kílóum. Þá lít ég bara út eins og beinagrind með húð......

En ég fékk lánuð lóð hjá vini mínum og er ég byrjuð að lyfta þeim..þau eru alveg heil 5 kíló :) og er ég núna að drepast í handleggjunum.... en já ég fer ekki í líkamsræktarstöðvar!! Ég get barasta ekki verið í kringum allt þetta fólk sem er þar....

Mér var sagt að vöðvar eru þyngri en fita.... ég hef litla fitu þannig að best að breyta þeim í vöðva...ég ætla samt ekki að vera eins og fitnessdrottning.....bara að ná tölunum rétt á vigtinni..og ef ég fer yfir það þá bara HÚRRA......
hverjir ætla að hjálpa mér???


» 2 hafa sagt sína skoðun

16.10.2008 14:59:12 / evaa

Bakraddasöngkona óskar eftir aðdáendum!

Loksins fékk ég aurinn minn... og núna er ísskápurinn ekki jafn tómur og hann var 8)

En ég ætla samt að gera mitt besta við að sitja á honum og eyða vel!!:lol:

Annars er ég þessa dagana alveg á fullu í sjálfboðavinnum.... er að koma mér inní starfið hjá spoex
var að kynna það í smáralindinni á laugardaginn og verð örugglega eitthvað meira þar.... ég er nú búin að rétta litlafingur...og að sjálfsögðu verður hendin tekin...en ég er alveg sátt við það.
Þetta eru samtök sem ég hef alltaf haft annan fótinn í vegna starfa föður míns þar.

líðan mín er góð þessa dagana...dett stundum niður í sorg en reyni að sjá allt það jákvæða og broslega í lífinu...

Njótið dagsins....



» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 15
Könnun
Á að ferðast utan landsteina í sumar?





Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 48554